top of page

​Nánd

Kompan, Alþýðuhúsið Siglufirði

Nánd er okkur mikilvæg og í henni finnum við fyrir stöðu okkar í heiminum og samfélagi alls sem er. Þræðir liggja víða, sýnilegir og ósýnilegir, þeir tengja saman allt sem lifir og hrærist og himin og jörð.

 

Verk Önnu. Þóru taka á sig ýmsar myndir, ullin sem áður veitti hita og skjól lyftist upp í rýminu og efni breytist í anda. Fyrir augum okkar svífa línur, litir og form sem líða um í rýminu og beina sjónum okkar til himins og jarðar. Þó sum þeirra sýnast við fyrstu sýn vera bundin í formi sínu eru þau þegar betur er að gáð, án fastra útlína og ramma. Þau leita út í rýmið og tengjast þannig umhverfi sínu og umheimi á náttúrulegan og eðlilegan hátt.

 

Þau tengja einnig okkur við heiminn og hvort annað og nándin á milli okkar eykst við upplifun okkar á verkinu. Þannig verðum við nær hvert öðru og heiminum öllum. Allt er eitt. 

Guðlaugur Valgarðsson, sýningarstjóri.

image.jpeg
Unknown.jpg

© 2024 by Anna. Proudly created with Wix.com

  • Twitter Metallic
  • s-facebook
bottom of page